Fréttir

true

Jörð skelfur undir Bárðarbungu

Öflug jarðskjálftahrina hófst í gærkvöldi í norðvesturhluta Bárðarbunguöskjunnar. Um 400 jarðskjálftar hafa mælst frá því að hrinan hófst, sá stærsti var af stærð 4,8 og varð kl. 20:14. Jarðskjálftavirknin var mest fram til klukkan 03:00 í nótt, en síðan hefur dregið úr henni, þó enn mælist jarðskjálftavirkni á svæðinu. „Of snemmt er að segja til…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík gerði góða ferð í Voga

Miðvikudaginn 10. júní áttust við Þróttur Vogum og Víkingur Ólafsvík í 2. deild karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á Vogaídýfuvelllinum þar sem 292 áhorfendur voru mættir til þess að hvetja sín lið. Þetta var frekar jafn leikur frá upphafi til enda, en Víkingur varð fyrri til að skora. Það var Asmer Begic sem kom…Lesa meira

true

Tiltektar- og fegrunardagur í Dalnum

Mánudaginn 15. júní verður haldinn tiltektar- og fegrunardagur á vellinum í Dalnum í Búðardal. „Um er að ræða samstarfsverkefni Dalabyggðar og UDN, þar sem markmiðið er að gæta aðstöðu svæðisins, fegra umhverfið og efla samfélagsandann,“ segir í tilkynningu sveitarfélagsins. Hafist verður handa kl. 16 og stendur vinna til 19. Í lok dags verður boðið upp…Lesa meira

true

Í fréttum er þetta helst

Sveitarfélagið Stykkishólmur gefur út blað sem nefnist „Helstu fréttir.“ Því er ætlað að bæta upplýsingaflæði frá sveitarfélaginu og m.a. til að ná betur til eldri borgara í sveitarfélagsins – og þeirra sem nota tölvur í minna mæli. Blaðið kemur út mánaðarlega og liggur m.a. frammi á Höfðaborg. Þá er einnig hægt að nálgast eintök af…Lesa meira

true

Kvenskörungar og kraftajötnar í Snæfellsbæ um helgina

Það mun leysast út gríðarlegir kraftar í Snæfellsbæ um helgina. Tvö aflraunamót verða haldin í Ólafsvík dagana 13. og 14. júní. Má búast við mikilli stemningu, en mótið er skipulagt af Sólarsporti líkamsrækt og er haldið til minningar um Héðinn Magnússon. Mótið hefur verið haldið árlega undanfarin ár við miklar vinsældir, eftir að hafa verið…Lesa meira

true

Ráðgjöf dregst saman fyrir helstu nytjastofna

Hafrannsóknastofnun birti í morgun ráðgjöf sína fyrir fiskveiðiárið 2026/2027. Niðurstöðurnar fela í sér lækkun í ráðgjöf fyrir nokkrar af mikilvægustu nytjategundum okkar, þar á meðal þorsk, ýsu, ufsa og síld. Í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar lækkar ráðlagður afli þorsks um 1% og verður 201.674 tonn á næsta fiskveiðiári. Þá lækkar ráðgjöf fyrir ýsu um 20%,…Lesa meira

true

Stórsigur ÍA kvenna á Selfossi

ÍA vann stórsigur á Selfossi 5-1 í Lengjudeild kvenna, en spilað í Akraneshöllinni í gær. Það er óhætt að segja að Skagakonur hafi leikið við hvern sinn fingur og Alexa Maletis fór á kostum í liði þeirra, en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.  Erna Björt Elíasdóttir skoraði eitt mark fyrir…Lesa meira

true

Fyrsta púttkeppni sumarsins milli Borgfirðinga og Skagamanna

Í gær var spilað fyrsta af þremur púttmótum sumarsins milli Borgfirðinga og Skagamanna. Spilað var á Hamri í Borgarnesi. Þátttaka var góð, eða rétt um 50 púttarar. Borgfirðingar báru sigur úr býtum með 491 höggi gegn 503, en Skagamenn hyggja á hefndir síðar í sumar. Næst verður spilað á Akranesi 21. júlí en endað á…Lesa meira

true

Kveðjufundur stjórnar SSV

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) hafa verið starfrækt frá árinu 1969 og eru sameiginlegur samstarfsvettvangur sveitarfélaga á Vesturlandi sem frá 1. júní síðastliðnum eru átta talsins. Starfssvæði samtakanna nær frá botni Hvalfjarðar í suðri að botni Gilsfjarðar í norðri. Öll sveitarfélög á Vesturlandi eiga aðild að SSV og fulltrúa í stjórn. Samkvæmt lögum SSV er…Lesa meira

true

Gjaldtaka hefst á ný á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi

Sveitarfélagið Stykkishólmur hyggst hefja gjaldtöku á ný á hafnarsvæðinu mánudaginn 15. júní nk. Sem fyrr er tilgangur gjaldtökunnar að bæta nýtingu bílastæða, stýra umferð og tryggja tekjur til að viðhalda og bæta aðstöðu á svæðinu. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir: „Í kjölfar samráðs við ferðaþjónustuaðila á svæðinu hefur sú breyting orðið á fyrirkomulagi gjaldtöku að…Lesa meira