Alexa Maletis markaskorari ÍA er orðin markahæst í deildinni með átta mörk.

Stórsigur ÍA kvenna á Selfossi

ÍA vann stórsigur á Selfossi 5-1 í Lengjudeild kvenna, en spilað í Akraneshöllinni í gær. Það er óhætt að segja að Skagakonur hafi leikið við hvern sinn fingur og Alexa Maletis fór á kostum í liði þeirra, en hún gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í leiknum.  Erna Björt Elíasdóttir skoraði eitt mark fyrir ÍA. Fimmta mark ÍA var síðan sjálfsmark Selfyssinga, en það var Stevie Reynolds sem skoraði eina mark Selfoss kvenna.