Hér er svipmynd frá Héðinsmótinu á síðasta ári. Mateusz Dulinskas á greinilega framtíðina fyrir sér sem kraftlyftingamaður. Hann var nýorðinn 17 ára á síðasta móti og var þarna að lyfta 135 kg. Ljósm. af

Kvenskörungar og kraftajötnar í Snæfellsbæ um helgina

Það mun leysast út gríðarlegir kraftar í Snæfellsbæ um helgina. Tvö aflraunamót verða haldin í Ólafsvík dagana 13. og 14. júní. Má búast við mikilli stemningu, en mótið er skipulagt af Sólarsporti líkamsrækt og er haldið til minningar um Héðinn Magnússon. Mótið hefur verið haldið árlega undanfarin ár við miklar vinsældir, eftir að hafa verið endurvakið árið 2024. Dómari á mótinu er hinn þekkti aflraunamaður Magnús Ver Magnússon.