Veiðiráðgjöf í ýsu dregst saman um 20% milli ára. Ljósm. úr safni

Ráðgjöf dregst saman fyrir helstu nytjastofna

Hafrannsóknastofnun birti í morgun ráðgjöf sína fyrir fiskveiðiárið 2026/2027. Niðurstöðurnar fela í sér lækkun í ráðgjöf fyrir nokkrar af mikilvægustu nytjategundum okkar, þar á meðal þorsk, ýsu, ufsa og síld. Í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar lækkar ráðlagður afli þorsks um 1% og verður 201.674 tonn á næsta fiskveiðiári. Þá lækkar ráðgjöf fyrir ýsu um 20%, fer í 63.206 tonn, fyrir ufsa um 16% í 49.887 tonn og fyrir sumargotssíld um 23% í 80.307 tonn. Ráðgjöf fyrir steinbít lækkar jafnframt um 8% í 8.641 tonn. Áfram er lagt til að engar veiðar verði heimilaðar á djúpkarfa.