
Víkingur Ólafsvík gerði góða ferð í Voga
Miðvikudaginn 10. júní áttust við Þróttur Vogum og Víkingur Ólafsvík í 2. deild karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram á Vogaídýfuvelllinum þar sem 292 áhorfendur voru mættir til þess að hvetja sín lið. Þetta var frekar jafn leikur frá upphafi til enda, en Víkingur varð fyrri til að skora. Það var Asmer Begic sem kom boltanum í netið með ágætu skoti á 37. mínútu fyrri hálfleiks, staðan 0-1 fyrir Víking.