
Tiltektar- og fegrunardagur í Dalnum
Mánudaginn 15. júní verður haldinn tiltektar- og fegrunardagur á vellinum í Dalnum í Búðardal. „Um er að ræða samstarfsverkefni Dalabyggðar og UDN, þar sem markmiðið er að gæta aðstöðu svæðisins, fegra umhverfið og efla samfélagsandann,“ segir í tilkynningu sveitarfélagsins. Hafist verður handa kl. 16 og stendur vinna til 19. Í lok dags verður boðið upp á grillaðar pylsur. „Íbúar og aðrir velunnarar Dalsins eru eindregið hvattir til að taka þátt og leggja sitt af mörum. Verkefnin verða fjölbreytt, allt frá almennri tiltekt og hreinsun svæðisins yfir í smávægilegar lagfæringar og fegrun,“ segir á vef Dalabyggðar. Skipuleggjendur vonast til góðrar þátttöku og hvetja sem flesta til að mæta og taka þátt í að fegra dalinn enn frekar.