Fréttir

true

Nýja flotbryggjan sett niður

Það var mikið um að vera á höfninni í Grundarfirði í morgun þegar starfsmenn frá Köfunarþjónustunni, BB og sonum og Ragnari og Ásgeir voru að vinna við að koma nýrri flotbryggju á flot. Bryggjan er viðbót við núverandi aðstæður og mun bæta til muna aðkomu báta frá skemmtiferðaskipum. Nú geta átta bátar lagt að í…Lesa meira

true

Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur gengið frá ráðningu á Lilju Björg Ágústsdóttur í stöðu sveitarstjóra. Lilja Björg er fædd og uppalin í Dölunum og bjó þar fram að framhaldsskólaaldri. Hún er með meistaragráðu í lögfræði (ML) og B.Sc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst, auk kennaramenntunar frá Háskóla Íslands. Hún hefur jafnframt aflað sér réttinda til…Lesa meira

true

Skagakonur með naumt tap gegn Keflavík

Eftir góðan leik á heimavelli 25. maí síðastliðinn, þar sem Skagakonur létu Tindastól frá Sauðárkróki „finna til tevatnsins“ og unnu stórsigur 5-0, þá töpuðu þær naumlega útileik móti Keflavík laugardaginn 30. maí á HS Orku vellinum 2-1. Eftir leikinn eru þær rétt fyrir neðan miðja deild, í sjötta sæti með sex stig, en það eru…Lesa meira

true

Vit-Hit leikarnir í sundi fóru fram á Akranesi

Stærstu Vit-Hit leikarnir í sundi frá upphafi voru haldnir um liðna helgi á Jaðarsbökkum. Alls tóku 397 sundmenn þátt í mótinu sem stungu sér alls 1.897 sinnum til sunds sem gerir þetta að langstærsta barna- og unglingamóti í sundi sem haldið hefur verið á Íslandi í ár. Sundfélag Hafnarfjarðar stóð uppi sem sigurvegari í liðakeppninni…Lesa meira

true

Fylgi flokka breytist lítið milli kannana

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem gerður var fyrir Ríkisútvarpið í lok maí, er lítil hreyfing á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi frá síðustu könnun. Samfylking mælist stærst með 22,7% og næði tveimur þingmönnum í NV kjördæmi. Miðflokkur er næststærstur í kjördæminu, með 20,4%, og fengi sömuleiðis tvo þingmenn. Sjálfstæðisflokkur mælist nú með 18,6% og fengi einn…Lesa meira

true

Víkingur Ó á við ramman reip að draga í annarri deildinni

Síðastliðinn sunnudag sótti Víkingur Ólafsvík Selfoss heim og var spilað á Jáverk vellinum á Selfossi. Virtist stefna í nokkuð fjörugan og jafnan leik og áttu bæði lið sín færi. Víkingur gerði í tvígang góða atlögu að marki Selfoss en markvörður þeirra varði meistaralega í tveimur dauðafærum sem Víkingur fékk, dýrmæt tækifæri sem fóru þar forgörðum.…Lesa meira

true

Kári með stórleik og risa sigur á heimavelli

Knattspyrnufélagið Kári tók á móti Dalvík/Reyni í Akraneshöllinni síðastliðinn sunnudag. Það er skemmst frá því að segja að Káramenn léku á alls oddi og unnu stórsigur á gestunum. Kári komst í 2-0 í fyrri hálfleik með mörkum frá Mána Berg og Jóni Þór Finnbogasyni. Káramenn héldu síðan uppteknum hætti í síðari hálfleik þar sem þeir…Lesa meira

true

Vara við róttækum breytingum á starfi heilbrigðiseftirlits

Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi (SHÍ) héldu fund meðal starfsfólks svæðanna í gær. Í ályktun frá stjórn samtakanna er varað við því að frumvörp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og flutning verkefna þess til ríkisstofnana verði afgreidd frá Alþingi á næstu dögum án þess að unnið hafi verið með fullnægjandi hætti úr fjölmörgum, faglega unnum og alvarlegum…Lesa meira

true

Merkisdagur í Hvalfjarðarsveit

Á þessum fallega sumardegi fagnar Hvalfjarðarsveit 20 ára afmæli. Á dögunum hafði sveitarfélaginu borist þau gleðitíðindi að það hefði formlega hlotið staðfestingu á því að sveitarfélagið uppfyllti öll skilyrði til að verða barnvænt sveitarfélag. Af því tilefni ákvað UNICEF að veita Hvalfjarðarsveit viðurkenningu frá samtökunum á þessum merkisdegi og mætti Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á…Lesa meira

true

Jörð skalf undir Hengli

Jarðskjálfti upp á 4,5 stig varð í Hengli á Hellisheiði fyrir nokkrum mínútum síðan. Skjálftinn fannst meðal annars vel á Akranesi, höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Á þessu svæði hófst jarðskjálftahrina um klukkan sjö í gærmorgun og hafa á fimmta hundrað skjálftar mælst, en þessi sá lang stærsti.Lesa meira