Fylgi flokka breytist lítið milli kannana

Samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup, sem gerður var fyrir Ríkisútvarpið í lok maí, er lítil hreyfing á fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi frá síðustu könnun. Samfylking mælist stærst með 22,7% og næði tveimur þingmönnum í NV kjördæmi. Miðflokkur er næststærstur í kjördæminu, með 20,4%, og fengi sömuleiðis tvo þingmenn. Sjálfstæðisflokkur mælist nú með 18,6% og fengi einn kjördæmakjörinn þingmann og Framsókn, sem mælist með 14,3%, fengi sömuleiðis einn. Aðrir flokkar næðu ekki kjördæmakjörnum þingmanni.