
Merkisdagur í Hvalfjarðarsveit
Á þessum fallega sumardegi fagnar Hvalfjarðarsveit 20 ára afmæli. Á dögunum hafði sveitarfélaginu borist þau gleðitíðindi að það hefði formlega hlotið staðfestingu á því að sveitarfélagið uppfyllti öll skilyrði til að verða barnvænt sveitarfélag. Af því tilefni ákvað UNICEF að veita Hvalfjarðarsveit viðurkenningu frá samtökunum á þessum merkisdegi og mætti Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, á staðinn til þess að veita sveitarfélaginu viðurkenningarskjöld og fána UNICEF þessu til staðfestingar. Athöfnin fór fram í hádeginu í dag og var börnum úr leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar boðið í afmælið í stjórnsýsluhúsinu á sama tíma. Ungmennaráðið veitti viðurkenningarskildinum og fánanum viðtöku fyrir hönd sveitarfélagsins. Kvenfélagið Lilja bauð upp á afmælisköku ásamt fjölbreyttum veitingum og Heiðmar Eyjólfsson lék á gítar og leiddi afmælissönginn, þar sem viðstaddir tóku hressilega undir. Það var glatt á hjalla í Hvalfjarðarsveit og mættu öll börnin í eins peysum í tilefni dagsins. Núna síðdegis verður svo opið hús í Stjórnsýsluhúsinu þar sem íbúar, starfsmenn og velunnarar eru velkomnir. Blaðamaður Skessuhorns mætti á staðinn í hádeginu og ræddi m.a. við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF.

Mikilvægt að börn og ungmenni hafi áhrif
„Ég er að veita sveitarfélaginu viðurkenningu fyrir að vera barnvænt sveitarfélag,“ segir Birna. En hvað þýðir það með öðrum orðum? „Það þýðir að sveitarfélagið hefur tekið þátt í alþjóðlegu verkefni, sem vinnur að því að innleiða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í starfsemi sveitarfélagsins. Og til þess að fá þessa viðurkenningu þá þarf fyrst að vinna stöðumat til þess að kortleggja stöðu barna í sveitarfélaginu, gera aðgerðaáætlun um hvað þarf að laga og framkvæma áætlunina, þ.e.a.s. laga það sem er ábótavant og gera þannig sveitarfélagið betra. Það sem skiptir rosalega miklu máli í þessu ferli er að börn og ungmenni fái tækifæri til að hafa áhrif á það sem verið er að gera. Þannig að virkt ungmennaráð eins og við sáum núna skiptir sköpum. Það sé í virku samtali við sveitarstjórnina og börnin í sveitarfélaginu, er þannig brú á milli,“ segir Birna.
Þetta hlýtur að vera einstakt fyrir ekki stærra sveitarfélag og Hvalfjarðarsveit, sem er með um 840 íbúa, er það ekki? „Jú, það eru nokkrar risa borgir úti í heimi sem eru að keppast við að fá svona viðurkenningu og við sérhæfum okkur í minni sveitarfélögum sem gera þetta með enn meiri glæsibrag. Ungmennaráðið stóð sig virkilega vel hér í dag og þau voru einmitt að tala um barnaþing sem hefur verið haldið hérna þar sem að börnum sveitarfélagsins er safnað saman og þau fá öll tækifæri til þess að láta rödd sína heyrast. Benda á það sem má betur fara í sveitarfélaginu þannig að svona barnaþing eru frábær vettvangur til þess að fá raddir barna fram og þeirra áherslumál og koma því áleiðis til sveitarstjórnar, sem tekur ákvarðanir um framkvæmdir og fjárveitingarvald,“ segir Birna að lokum.

Miðstig færði sveitarstjórninni mynd
Haraldur Benediktsson og Margrét Þóra Júlíusdóttir, sem í dag taka við stjórn sveitarfélagsins sem oddvitar meiri- og minnihluta, tóku við gjöfinni og við það tilefni ræddi blaðamaður Skessuhorns við Harald. Þetta er gleðidagur, hvað finnst ykkur standa upp úr? „Það er náttúrulega gaman að fá viðurkenningu UNICEF fyrir að vera barnvænt sveitarfélag á þessum merkisdegi, tuttugu ára afmæli Hvalfjarðarsveitar, í þessu einstaka veðri sem leikur við okkur. Þetta er mikill gleðidagur og þetta er ekki einfaldur ferill, að komast í gegnum þessa síu og fá þessa viðurkenningu. En þetta er fyrst og fremst þá vitnisburður um gott starf barna og unglinga – og gott utan umhald um þeirra hag og starfsemi í sveitarfélaginu,“ sagði Haraldur glaður í bragði.






