Ingibjörg Þóranna Steinudóttir oddviti sveitarstjórnar og Lilja Björg Ágústsdóttir verðandi sveitarstjóri Dalabyggðar. Ljósm. Dalir.is

Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar

Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur gengið frá ráðningu á Lilju Björg Ágústsdóttur í stöðu sveitarstjóra. Lilja Björg er fædd og uppalin í Dölunum og bjó þar fram að framhaldsskólaaldri. Hún er með meistaragráðu í lögfræði (ML) og B.Sc. gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst, auk kennaramenntunar frá Háskóla Íslands. Hún hefur jafnframt aflað sér réttinda til málflutnings fyrir héraðsdómi.

Lilja býr yfir víðtækri og fjölbreyttri reynslu af stjórnsýslu og rekstri sveitarfélaga. Hún starfar nú sem sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslu hjá Borgarbyggð auk þess að gegna hlutverki staðgengils sveitarstjóra. Hún hefur um tíma starfað sem sveitarstjóri Borgarbyggðar og sinnt fjölbreyttum lögfræðistörfum, bæði sem sérfræðingur hjá Akraneskaupstað og sem lögmaður og meðeigandi lögmannsstofu. Lilja hefur einnig gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnarstarfa, þar á meðal sem forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar og formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi.

„Sveitarstjórn Dalabyggðar bindur miklar vonir við ráðninguna og telur Lilju hafa þá faglegu þekkingu, reynslu og leiðtogahæfni sem þarf til að leiða sveitarfélagið áfram,“ segir í tilkynningu frá Dalabyggð.