
Víkingur Ó á við ramman reip að draga í annarri deildinni
Síðastliðinn sunnudag sótti Víkingur Ólafsvík Selfoss heim og var spilað á Jáverk vellinum á Selfossi. Virtist stefna í nokkuð fjörugan og jafnan leik og áttu bæði lið sín færi. Víkingur gerði í tvígang góða atlögu að marki Selfoss en markvörður þeirra varði meistaralega í tveimur dauðafærum sem Víkingur fékk, dýrmæt tækifæri sem fóru þar forgörðum. Það voru hins vegar Selfyssingar sem urðu fyrri til að skora með hnitmiðuðu skoti af stuttu færi. Þeir bættu síðan við öðru marki á svipuðum nótum stuttu síðar, staðan í skemmtilegum hálfleik 2-0 fyrir Selfossi. Viðar Örn Kjartansson sýndi góð tilþrif og mikil gæði en hann skoraði bæði mörkin fyrir Selfoss.