
Vit-Hit leikarnir í sundi fóru fram á Akranesi
Stærstu Vit-Hit leikarnir í sundi frá upphafi voru haldnir um liðna helgi á Jaðarsbökkum. Alls tóku 397 sundmenn þátt í mótinu sem stungu sér alls 1.897 sinnum til sunds sem gerir þetta að langstærsta barna- og unglingamóti í sundi sem haldið hefur verið á Íslandi í ár. Sundfélag Hafnarfjarðar stóð uppi sem sigurvegari í liðakeppninni í ár. Sunddeild Breiðabliks hafnaði í 2. sæti og Sundfélagið Óðinn í 3. sæti. Sunddeild Ármanns fylgdi fast á hæla þeirra í 4. sæti. Prúðasta lið mótsins var Sunddeild Ármanns. „Sundfólk Ármanns sýndi einstaka kurteisi, jákvætt viðmót og mikinn íþróttaanda bæði innan sem utan laugar. Slík framkoma er til fyrirmyndar og endurspeglar þau gildi sem Vit-Hit leikarnir standa fyrir,“ segir Kjell Wormdal yfirþjálfari hjá Sundfélagi Akraness.