
Stjórnsýsluhúsið á Hagamel. Ljósm. arg.
Vara við róttækum breytingum á starfi heilbrigðiseftirlits
Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi (SHÍ) héldu fund meðal starfsfólks svæðanna í gær. Í ályktun frá stjórn samtakanna er varað við því að frumvörp um afnám heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og flutning verkefna þess til ríkisstofnana verði afgreidd frá Alþingi á næstu dögum án þess að unnið hafi verið með fullnægjandi hætti úr fjölmörgum, faglega unnum og alvarlegum athugasemdum sem fram hafa komið. Í þeim er m.a. varað við hættu á þjónusturofi, auknu flækjustigi, óljósri ábyrgð, lengri boðleiðum og auknum kostnaði.