Jörð skalf undir Hengli

Jarðskjálfti upp á 4,5 stig varð í Hengli á Hellisheiði fyrir nokkrum mínútum síðan. Skjálftinn fannst meðal annars vel á Akranesi, höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi. Á þessu svæði hófst jarðskjálftahrina um klukkan sjö í gærmorgun og hafa á fimmta hundrað skjálftar mælst, en þessi sá lang stærsti.