Fréttir

true

Akraborg bætir gæludýrafóðri við framleiðsluna – kíkt í heimsókn

Síðastliðna áratugi hefur mikil áhersla verið lögð á fullvinnslu sjávarafurða, hverju nafni sem þær nefnast. Marktækur árangur hefur náðst og fjölmörg fyrirtæki orðið til vegna nýsköpunar. Eitt af þeim fyrirtækjum sem urðu til síðla á liðinni öld er með höfuðstöðvar sínar við Kalmansvelli á Akranesi. Upphaflega var fyrirtækið stofnað 1989 og hét Jón Þorsteinsson ehf.,…Lesa meira

true

Eldur kom upp í fiskibát á Breiðafirði

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk tilkynningu á tólfta tímanum í dag um að eldur væri í vélarrúmi fiskibáts sem staddur var á Breiðafirði. Einn maður var um borð í bátnum. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á mesta forgangi ásamt áhöfn Bjargar, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Rifi. Einnig voru skip og bátar í grenndinni beðin…Lesa meira

true

Gott á skakinu í dag

Blíðuveður er á miðunum á Breiðafirði í dag. Alfons Finnsson sjómaður og fréttaritari Skessuhorns rær á Svövu SH og er nú staddur út af Búlandshöfða. „Það er búið að vera ágætis fiskerí í dag og ég er kominn með skammtinn,“ sagði Alfons. Á myndinni er Pétur F Karlsson, Færeyingur, en hann rær á Diddu SH…Lesa meira

true

Bláfánanum flaggað á Langasandi í fjórtánda sinn

Í dag var Bláfáninn dreginn að húni við Langasand á Akranesi, fjórtánda árið í röð. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf að umhverfismálum. Meginmarkmið verkefnisins er að vernda lífríki haf- og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er veittur þeim baðströndum…Lesa meira

true

Stjörnu-Sævar í heimsókn á Skaganum

Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, heimsótti leik- og grunnskólabörn á Akranesi á dögunum vegna væntanlegs almyrkva á sólu miðvikudaginn 12. ágúst næst komandi. Myrkvinn verður sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Það voru ungir og áhugasamir Skagamenn sem tóku vel á móti Sævari er hann fræddi þau um þetta merkilega fyrirbæri.…Lesa meira

true

Skallagrímur og SR skildu jöfn í 5. deild karla í knattspyrnu

Skallagrímur tók á móti SR, varaliði Þróttar, á Skallagrímsvelli í gærkvöldi. Þetta var leikur tveggja hálfleikja. Í fyrri hálfleik var SR sterkari aðilinn en það var þó ekki fyrr en á síðustu mínútu hálfleiksins sem SR skoraði fyrsta markið, en það gerði Gabríel Geir Ingvarsson og staðan í hálfleik 0-1 fyrir SR. Seinni hálfleikur hófst…Lesa meira

true

Nýr rekstraraðili við móttöku einnota drykkjarumbúða á Snæfellsnesi

Eftir 15. júní næstkomandi mun Ragnar og Ásgeir ehf. hætta móttöku fyrir Endurvinnsluna í Grundarfirði og Snæfellsbæ. Síðasti dagur til að koma með flöskur og dósir til þeirra verður mánudagurinn 15. júní. Endurvinnslan hefur þegar gengið frá samkomulagi við nýjan umboðsaðila sem mun taka við starfseminni og tryggja áframhaldandi þjónustu við íbúa og fyrirtæki á…Lesa meira

true

Kastað til bata í Langa á Mýrum

Um liðna helgi fór fram verkefnið „Kastað til bata“ við Langá á Mýrum. Þetta er endurhæfingarverkefni á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélagsins og Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Konur sem eru í endurhæfingu eftir brjóstakrabbamein er boðið í veiðiferð þar sem m.a. eru kennd fluguköst og að vaða yfir ár.   Kvennanefnd SVFR sér um leiðsögn og…Lesa meira

true

Baldur enn og aftur tekinn af Breiðafirði

Fram kom hjá Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra á íbúafundi í Vestmannaeyjum í gær að ferjurnar Baldur og Herjólfur munu báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní nk. Þetta fyrirkomulag verður meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni…Lesa meira

true

Gönguhátíðin Frá fjalli til fjöru verður 20. júní á Akranesi

Bryddað verður upp á þeirri nýjung að halda þrjátíu kílómetra langa gönguhátíð á Akranesi laugardaginn 20. júní. Í forsvari fyrir verkefninu eru Eydís Líndal Finnbogadóttir, Anna Bjarnadóttir og Bjarnheiður Hallsdóttir. „Þetta verður vonandi skemmtileg gönguhátíð sem við hvetjum sem flesta til að taka þátt í,“ segir Eydís í samtali við Skessuhorn. „Við leggjum af stað…Lesa meira