
Akraborg bætir gæludýrafóðri við framleiðsluna – kíkt í heimsókn
Síðastliðna áratugi hefur mikil áhersla verið lögð á fullvinnslu sjávarafurða, hverju nafni sem þær nefnast. Marktækur árangur hefur náðst og fjölmörg fyrirtæki orðið til vegna nýsköpunar. Eitt af þeim fyrirtækjum sem urðu til síðla á liðinni öld er með höfuðstöðvar sínar við Kalmansvelli á Akranesi. Upphaflega var fyrirtækið stofnað 1989 og hét Jón Þorsteinsson ehf., nefnt eftir stofnandanum, en fékk síðar nafnið Akraborg. Hjá Akraborg starfa í dag 45 á tveimur starfsstöðvum; á Akranesi og í Ólafsvík - og verkefnin eru næg. Árið 2015 keypti Lýsi hf. Akraborg. Þess má geta að nú eru áform uppi um kaup Brims á Lýsi en kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Blaðamaður Skessuhorn leit nýverið við hjá Ragnari Þór Gunnarssyni framkvæmdastjóra Akraborgar.