
Gönguhátíðin Frá fjalli til fjöru verður 20. júní á Akranesi
Bryddað verður upp á þeirri nýjung að halda þrjátíu kílómetra langa gönguhátíð á Akranesi laugardaginn 20. júní. Í forsvari fyrir verkefninu eru Eydís Líndal Finnbogadóttir, Anna Bjarnadóttir og Bjarnheiður Hallsdóttir. „Þetta verður vonandi skemmtileg gönguhátíð sem við hvetjum sem flesta til að taka þátt í,“ segir Eydís í samtali við Skessuhorn. „Við leggjum af stað klukkan 9 um morguninn frá Akranesvita; göngum upp að Akrafjalli, upp á fjall og förum Akrafjallshringinn. Þaðan er stefnan tekin að hesthúsahverfinu á Æðarodda og Elínarhöfða og ströndin þrædd um Kalmansvík, Kampinn, Krókalón, Breiðina og endað þar sem gangan hófst á Breiðinni.“ Eydís segir að heildar vegalengdin sé um 30 kílómetrar.
„Fyrirkomulagið verður þannig að þau sem hafa áhuga á að taka þátt í að ganga alla leiðina, eða Akrafjallshringinn, þurfa að skrá sig fyrirfram og er þátttökugjaldi stillt í hóf, eða 6000 krónur. Innifalið í því eru drykkjarstöðvar, orkustykki og vandað eyrnaband sem verður einkenni hátíðarinnar. Láglendisleiðin verður fyrir þau sem vilja ekki ganga á Akrafjall en ganga allt annað. Það er í heildina 15 km en sú ganga mun hefjast við vitann kl. 14:00 og sameinast Hálendishópnum við Akrafjall. Láglendisleiðin kostar 5000 kr. Einnig verður hægt að koma inn í gönguna á ákveðnum stöðum, og ganga með að hluta í upphafi og lok göngunnar (á síðustu og fyrstu ca. 3 km) allt eftir getu og löngun fólks og er ekki gert ráð fyrir kostnaði ef fólk er að koma með Spöl, en hægt er að greiða framlag upp á 2000 krónur til að styrkja viðburðinn.“
Eydís ítrekar að hér er ekki um keppni að ræða, ekki hlaup, heldur rólega göngu þar sem áherslan er lögð á útivist og samveru. „Við munum auglýsa fyrirkomulagið betur fram að hátíðinni. Það verður takmarkaður fjöldi sem mun geta farið með alla leið sem helgast af takmörkuðu plássi í Akrafjallshringnum. Fararstjórar verða með alla leið og er um vant útivistarfólk að ræða.“ Skráning er á midiX.is. Allur ágóði af viðburðinum mun fara í styrki til félagsstarfs á Akranesi.