
Tumi fylgist áhugasamur með að allar komist klakklaust yfir. Ljósm. aðsendar
Kastað til bata í Langa á Mýrum
Um liðna helgi fór fram verkefnið „Kastað til bata“ við Langá á Mýrum. Þetta er endurhæfingarverkefni á vegum Brjóstaheilla - Samhjálpar kvenna, Krabbameinsfélagsins og Stangaveiðifélags Reykjavíkur. Konur sem eru í endurhæfingu eftir brjóstakrabbamein er boðið í veiðiferð þar sem m.a. eru kennd fluguköst og að vaða yfir ár.