Skallagrímur og SR skildu jöfn í 5. deild karla í knattspyrnu

Skallagrímur tók á móti SR, varaliði Þróttar, á Skallagrímsvelli í gærkvöldi. Þetta var leikur tveggja hálfleikja. Í fyrri hálfleik var SR sterkari aðilinn en það var þó ekki fyrr en á síðustu mínútu hálfleiksins sem SR skoraði fyrsta markið, en það gerði Gabríel Geir Ingvarsson og staðan í hálfleik 0-1 fyrir SR.