
Börnin hlýddu á Stjörnu-Sævar af mikilli athygli. Ljósm. Akraneskaupstaður
Stjörnu-Sævar í heimsókn á Skaganum
Sævar Helgi Bragason, betur þekktur sem Stjörnu-Sævar, heimsótti leik- og grunnskólabörn á Akranesi á dögunum vegna væntanlegs almyrkva á sólu miðvikudaginn 12. ágúst næst komandi. Myrkvinn verður sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Það voru ungir og áhugasamir Skagamenn sem tóku vel á móti Sævari er hann fræddi þau um þetta merkilega fyrirbæri.