
Nýr rekstraraðili við móttöku einnota drykkjarumbúða á Snæfellsnesi
Eftir 15. júní næstkomandi mun Ragnar og Ásgeir ehf. hætta móttöku fyrir Endurvinnsluna í Grundarfirði og Snæfellsbæ. Síðasti dagur til að koma með flöskur og dósir til þeirra verður mánudagurinn 15. júní. Endurvinnslan hefur þegar gengið frá samkomulagi við nýjan umboðsaðila sem mun taka við starfseminni og tryggja áframhaldandi þjónustu við íbúa og fyrirtæki á svæðinu. Sá er Þorgrímur Kristinsson.