
Baldur í heimahöfn sinni í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni: sá
Baldur enn og aftur tekinn af Breiðafirði
Fram kom hjá Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra á íbúafundi í Vestmannaeyjum í gær að ferjurnar Baldur og Herjólfur munu báðar sigla til og frá Vestmannaeyjum frá og með mánudeginum 8. júní nk. Þetta fyrirkomulag verður meðan unnið er að viðgerð á einni vél Herjólfs sem bilaði í apríl. Gert er ráð fyrir að viðgerð á vélinni ljúki upp úr miðjum júní. Af þessu leiðir að ferðir Baldurs verða ekki milli Stykkishólms og Brjánslækjar þennan tíma. Ferjan Særún mun hins vegar sinna siglingum til Flateyjar í fjarveru Baldurs og tryggja þjónustu við samfélagið þar. Siglingaáætlun fyrir Breiðafjörð verður kynnt innan skamms.