Fréttir

true

Kosið verður í þjóðaratkvæðagreiðslu á höfuðdaginn

Alþingi samþykkti síðdegis í gær þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu þess efnis að 29. ágúst næstkomandi verði greidd atkvæði um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þingmenn meirihlutans á Alþingi greiddu atkvæði með tillögunni, þingmenn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks sátu hjá og þingmenn Miðflokks greiddu atkvæði gegn henni. Svarmöguleikar verða einfaldlega „Já“ eða „Nei“.Lesa meira

true

Síðasta næturlokunin afstaðin í Hvalfjarðargöngum

Eftir síðustu nótt er hætt næturlokunum í Hvalfjarðargöngum sem voru óhjákvæmilegar vegna endurnýjunar ljósabúnaðar. Lokað hefur verið í göngin fimm nætur í viku frá klukkan 21:30-06:00 á tímabilinu frá 7. apríl sl. Að sögn Sigríðar Ingu Sigurðardóttur í samskiptadeild Vegagerðarinnar tekur nú við fínstilling ljósabúnaðar í göngunum, en sú vinna mun engin áhrif hafa á…Lesa meira

true

Læknisvottorðs vegna ökuskírteina ekki lengur krafist við 65 ára aldur

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini. Veigamesta breytingin felur í sér í að læknisvottorðs verður framvegis ekki krafist sjálfkrafa sökum aldurs fyrr en umsækjandi hefur náð 75 ára aldri, í stað 65 ára aldurs áður. Þessi breyting á reglugerðinni var unnin í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Markmiðið er að einfalda umsóknarferlið og…Lesa meira

true

Vesturlandsvegi við Esjumela lokað til norðurs á sunnudagskvöld

Vegagerðin hefur gefið heimild til malbikunarframkvæmda á Vesturlandsvegi á móts við Esjumela, ef veður leyfir. Að kvöldi sunnudagsins 31. maí og fram á nótt er stefnt á að fræsa og/eða malbika kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela. Umferðastýring verður á verksvæðinu á framkvæmdartímanum. Kaflinn er 670 m langur. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Áætlað…Lesa meira

true

Hefur æft íþróttir í 80 ár og mætir á landsmót í lok júní

Landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri verður haldið við Eyjafjörð síðustu helgina í júní. Á mótið stefna fjölmargir keppendur af Vesturlandi. Þeirra á meðal er íþróttagarpurinn, smiðurinn og útfararstjórinn Þorbergur Þórðarson á Akranesi. Hann hefur mætt á mótið á hverju ári frá 2017. Þorbergur hefur alla tíð verið öflugur íþróttamaður og hefur bæði æft…Lesa meira

true

Olíumengaður jarðvegur við Olís Esjubraut

Olís vinnur þessa dagana að því að skipta um eldsneytistanka við starfsstöð fyrirtækisins á Esjubraut á Akranesi. Framkvæmdin hefur verið unnin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands. Þorsteinn Narfason framkvæmdastjóri þess segir að í fyrstu hafi verið talið að svæðið væri hreint enda enga olíumengun að finna undir tönkunum, sem eru upprunalegir. „Nýju tankarnir eru stærri…Lesa meira

true

Sinnti ekki stöðvunarmerki og var eltur 80 kílómetra

Lögreglan á Vesturlandi veitti í morgun ökumanni eftirför alla leið frá Vegamótum á Snæfellsnesi og í Skorradal. Fréttavefur RUV greinir frá. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og hafnaði að endingu utan vegar í Skorradal eftir alls um 80 kílómetra eftirför. Naglamottum var beitt en ökumaðurinn komst fram hjá þeim. Fjöldi lögreglubíla auk sjúkrabíla og þyrla Landhelgisgæslunnar…Lesa meira

true

Víkingsmenn lutu í gras á Blönduósi

Karlalið Kormáks/Hvatar tók á móti Víkingi Ólafsvík í fyrstu umferð Gatorade bikarkeppninnar sl. fimmtudag. Heimamenn voru sterkari aðilinn í leiknum, skoruðu fyrsta markið á 10. mínútu. Abdelhadi Khalok El Bouzarrari svaraði fyrir Víking á 25. mínútu en Blönduósingar bætti öðru marki sínu við skömmu fyrir leikhlé. Björn Henry Kristjánsson jafnaði leikinn á 58. mínútu og…Lesa meira

true

Minnt er á rafmagnsleysi eftir miðnætti í kvöld

Vegna viðhaldsvinnu Landsnets við aðveitustöð rafmagns á Vatnshömrum í Andakíl verður rafmagnslaust á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði frá kl. 00:10 til 02:10 aðfararnótt föstudagsins 29. maí. „Viðskiptavinir eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa,“ segir í tilkynningu frá Rarik.Lesa meira

true

Kallað eftir áhugasömum í nefndir Dalabyggðar

Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar hefur lýst eftir áhugasömum íbúum til starfa í nefndum sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili. Þeir sem sýna áhuga þurfa að senda tölvupóst á dalir@dalir.is eða hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 3. júní nk. Nefndirnar sem um ræðir eru kjörstjórn, umhverfis- og skipulagsnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, menningarmálanefnd, atvinnumálanefnd og fjallskilanefndir Skógarstrandar, Suðurdala, Laxárdals, Hvammssveitar,…Lesa meira