Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar. F.v. Sindri Geir Sigurðsson, Bjarnheiður Jóhannsdóttir, Ingibjörg Þóranna Steinudóttir, Guðlaug Kristinsdóttir, Ingveldur Guðmundsdóttir, Skjöldur Orri Skjaldarson og Guðbrandur Tumi Gíslason. Ljósm. mm

Kallað eftir áhugasömum í nefndir Dalabyggðar

Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggðar hefur lýst eftir áhugasömum íbúum til starfa í nefndum sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili. Þeir sem sýna áhuga þurfa að senda tölvupóst á dalir@dalir.is eða hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 3. júní nk. Nefndirnar sem um ræðir eru kjörstjórn, umhverfis- og skipulagsnefnd, félagsmálanefnd, fræðslunefnd, menningarmálanefnd, atvinnumálanefnd og fjallskilanefndir Skógarstrandar, Suðurdala, Laxárdals, Hvammssveitar, Fellsstrandar, Skarðsstrandar og Saurbæjar.