Vesturlandsvegi við Esjumela lokað til norðurs á sunnudagskvöld

Vegagerðin hefur gefið heimild til malbikunarframkvæmda á Vesturlandsvegi á móts við Esjumela, ef veður leyfir. Að kvöldi sunnudagsins 31. maí og fram á nótt er stefnt á að fræsa og/eða malbika kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela. Umferðastýring verður á verksvæðinu á framkvæmdartímanum. Kaflinn er 670 m langur. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 sunnudaginn 31. maí og fram til kl. 02:00 um nóttina. Af þessum sökum verður Hringvegurinn lokaður til norðurs við Þingvallaveg og vegfarendur sendir á hjáleið um Þinvallaveg (36) Kjósarskarðsveg (48) og Hvalfjarðarveg (47). Það er töluverður krókur og því er mikilvægt að fólk hafi þetta í huga. Umferð á leið til suðurs verður hins vegar meðfram vinnusvæðinu. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas.