Horft yfir framkvæmdasvæðið við Olís. Ljósm. akranes.is

Olíumengaður jarðvegur við Olís Esjubraut

Olís vinnur þessa dagana að því að skipta um eldsneytistanka við starfsstöð fyrirtækisins á Esjubraut á Akranesi. Framkvæmdin hefur verið unnin í samráði við Heilbrigðiseftirlit Vesturlands. Þorsteinn Narfason framkvæmdastjóri þess segir að í fyrstu hafi verið talið að svæðið væri hreint enda enga olíumengun að finna undir tönkunum, sem eru upprunalegir. „Nýju tankarnir eru stærri og því þurfti að grafa dýpra. Þá kom í ljós talsverð olíumengun og er búið að fjarlægja marga farma af menguðum jarðvegi. Engin saga er þekkt um olíuslys eða olíumengun á svæðinu og því er uppruni olíunnar óþekktur,“ segir í tilkynningu á vef Akraneskaupstaðar.