Þorbergur með lukkuskóna.

Hefur æft íþróttir í 80 ár og mætir á landsmót í lok júní

Landsmót UMFÍ fyrir 50 ára og eldri verður haldið við Eyjafjörð síðustu helgina í júní. Á mótið stefna fjölmargir keppendur af Vesturlandi. Þeirra á meðal er íþróttagarpurinn, smiðurinn og útfararstjórinn Þorbergur Þórðarson á Akranesi. Hann hefur mætt á mótið á hverju ári frá 2017. Þorbergur hefur alla tíð verið öflugur íþróttamaður og hefur bæði æft og keppt í nokkrum íþróttagreinum í gegnum tíðina. Hann fagnaði nýverið 88 ára afmæli og fer eftir ráðum læknis síns, sem ráðlagði honum að slaka aðeins á í íþróttaiðkun sinni. Að þessu sinni keppir hann í boccía. Í boccia notar Þorbergur ætíð sömu skóna, rúmlega fertuga Reebok skó, sem tíminn hefur unnið á. Þótt þeir séu fjarska fallegir þá hefur Þorbergur límt þá og kíttað svo þeir detti ekki í sundur. „Ég hef notað gullskóna mína í fjörutíu ár og nota þá enn. Þetta eru lukkuskórnir,“ segir hann.