Sinnti ekki stöðvunarmerki og var eltur 80 kílómetra

Lögreglan á Vesturlandi veitti í morgun ökumanni eftirför alla leið frá Vegamótum á Snæfellsnesi og í Skorradal. Fréttavefur RUV greinir frá. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum og hafnaði að endingu utan vegar í Skorradal eftir alls um 80 kílómetra eftirför. Naglamottum var beitt en ökumaðurinn komst fram hjá þeim. Fjöldi lögreglubíla auk sjúkrabíla og þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna atviksins. Lögregla lokaði fjölda vega vegna eftirfararinnar og um tíma var löng röð bíla við Borgarfjarðarbrú. Að endingu hafnaði bíllinn utan vegar við Skorradalsvatn. Ökumanninum virtist ekki hafa orðið meint af en var þó fluttur á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi til skoðunar. Þaðan verður hann fluttur á lögreglustöð.