Fréttir

true

Eyja Rún á leið á EM U18 í frjálsum

Frjálsíþróttakonan Eyja Rún Gautadóttir úr Borgarfirði náði nýverið lágmarki í sjöþraut fyrir EM U18 sem verður haldið í Rieti á Ítalíu í sumar. Eyja Rún býr og æfir í Svíþjóð, en hún er ein af fjórum unglingum þar í landi sem búnir er að tryggja sér öruggt sæti á EM U18 í frjálsíþróttum. Lágmarkið í…Lesa meira

true

Veglokun aftur í kvöld í norðurátt á Vesturlandsvegi

Í kvöld, mánudaginn 1. júní og aðfaranótt 2. júní, er stefnt á að malbika tvo kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela og Kollafjörð. Kaflarnir eru 670m og 1490m langir. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 mánudaginn 1. júní og fram til kl. 07:00 á þriðjudagsmorgun. Umferðastýring verður…Lesa meira

true

Skagamenn sigursælir á Vesturlandsmótinu í boccía

Vesturlandsmótið í boccía fór fram í Íþróttahúsinu í Borgarnesi síðastliðinn föstudag. Til leiks mættu 14 sveitir; fjórar sveitir frá Akranesi og Borgarbyggð, þrjár úr Húnaþingi-vestra, tvær úr Stykkishólmi og ein sveit úr Mosfellsbæ. Þátttaka var heldur dræmari en fyrri ár, hvað svo sem veldur, en hér fyrir nokkrum árum voru allt að 24 sveitir, sem…Lesa meira

true

Andlát – Vigfús Kristinn Vigfússon í Ólafsvík

Látinn er á 102. aldursári Vigfús Kristinn Vigfússon byggingameistari í Ólafsvík, eða Vivvi í Vík, eins og margir heimamenn þekkja hann. Vigfús fæddist á Hellissandi 14. desember 1924 og var elsti íbúi Snæfellsbæjar. Hann hefur á sinni lífsleið sett sitt mark á ásýnd og uppbyggingu í bæjarfélaginu hvar hann hefur byggt upp fjölmörg hús og…Lesa meira

true

Starfsfólk heilbrigðiseftirlits lokar í dag og heldur fund

Skrifstofur heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verða lokaðar um tíma í dag vegna fundar starfsfólks um óvissu um framtíð starfa og kjara. Skrifstofa Heilbrigðiseftirlits Vesturlands á Hagamel verður því lokuð frá kl. 10:00 til 13:00 í dag, mánudag, vegna fundar starfsfólks sem Félag íslenskra náttúrufræðinga hefur boðað til. „Fundurinn er haldinn með félagsmönnum FÍN sem starfa hjá heilbrigðiseftirliti…Lesa meira

true

Ráðuneytið kynnir símafrí í grunnskólum

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðað fulltrúa allra skólaráða á kynningarfundi um fyrirhugað símafrí í grunnskólum. „Markmið fundanna er að ræða áformin og hvetja þátttakendur til að veita umsögn. Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum verða kynnt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda í júní,“ segir í tilkynningu. „Markmiðið með reglugerðinni er að…Lesa meira

true

Vesturlandsvegi við Esjumela lokað til norðurs í kvöld

Vegagerðin hefur gefið heimild til malbikunarframkvæmda á Vesturlandsvegi í kvöld á móts við Esjumela, ef veður leyfir. Að kvöldi sunnudagsins 31. maí og fram á nótt er stefnt á að fræsa og/eða malbika kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela. Umferðastýring verður á verksvæðinu á framkvæmdartímanum. Kaflinn er 670 m langur. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar…Lesa meira

true

Fjölmennasti útskriftarárgangur Menntaskóla Borgarfjarðar

Í gær var hátíðisdagur í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. 44 nemendur voru brautskráðir og var þetta jafnframt mesti fjöldi sem hefur brautskráðst að vori frá skólanum. Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Honum var tíðrætt um þá góðu stemningu og manneskjulegu menningu sem væri í skólanum. Að venju var utanaðkomandi aðila…Lesa meira

true

Pálmi Þór heldur áfram að þjálfa Skallagrím

Körfuknattleiksdeild Skallagríms í Borgarnesi hefur gert þriggja ára samning við Pálma Þór Sævarsson um þjálfun meistaraflokks. „Pálmi hefur mikið komið að starfi körfuknattleiksdeildarinnar, fyrst sem leikmaður frá unga aldri og þar til hann setti skóna á hilluna árið 2008. Eftir það fór Pálmi að þjálfa, ásamt stjórnarstörfum og að vera einn helsti stuðningsmaður deildarinnar. Hann…Lesa meira

true

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Í gær voru 74 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. 39 nemendur luku stúdentsprófi af þremur brautum, átta luku burtfararprófi úr rafvirkjun, fjórir úr vélvirkjun, tólf luku prófi af sjúkraliðabraut, einn lauk námi á framhaldsskólabraut og tveir útskrifuðust af starfsbraut. Sjö nemendur luku viðbótarnámi til stúdentsprófs eftir að hafa lokið iðngrein og fjórir nemendur…Lesa meira