
Veglokun aftur í kvöld í norðurátt á Vesturlandsvegi
Í kvöld, mánudaginn 1. júní og aðfaranótt 2. júní, er stefnt á að malbika tvo kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela og Kollafjörð. Kaflarnir eru 670m og 1490m langir. Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 mánudaginn 1. júní og fram til kl. 07:00 á þriðjudagsmorgun. Umferðastýring verður frá 19:00 til 21:00, en klukkan 21:00 verður lokun í norðurátt og hjáleið verður um Kjósarskarð. Ökumenn í suðurátt aka meðfram framkvæmdarsvæði. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu.