
Eyja Rún á leið á EM U18 í frjálsum
Frjálsíþróttakonan Eyja Rún Gautadóttir úr Borgarfirði náði nýverið lágmarki í sjöþraut fyrir EM U18 sem verður haldið í Rieti á Ítalíu í sumar. Eyja Rún býr og æfir í Svíþjóð, en hún er ein af fjórum unglingum þar í landi sem búnir er að tryggja sér öruggt sæti á EM U18 í frjálsíþróttum.