Ljósm. BBC News

Ráðuneytið kynnir símafrí í grunnskólum

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðað fulltrúa allra skólaráða á kynningarfundi um fyrirhugað símafrí í grunnskólum. „Markmið fundanna er að ræða áformin og hvetja þátttakendur til að veita umsögn. Drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum verða kynnt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda í júní,“ segir í tilkynningu. „Markmiðið með reglugerðinni er að takmarka notkun síma og snjalltækja barna og ungmenna í grunnskólum ásamt því að samræma og setja skýrari reglur um notkunina. Um leið er markmið hennar að styðja við faglegt skólastarf og að búa nemendum náms- og félagsumhverfi sem styður við farsælt nám þeirra og vellíðan.“