Sigursælir Skagamenn.

Skagamenn sigursælir á Vesturlandsmótinu í boccía

Vesturlandsmótið í boccía fór fram í Íþróttahúsinu í Borgarnesi síðastliðinn föstudag. Til leiks mættu 14 sveitir; fjórar sveitir frá Akranesi og Borgarbyggð, þrjár úr Húnaþingi-vestra, tvær úr Stykkishólmi og ein sveit úr Mosfellsbæ. Þátttaka var heldur dræmari en fyrri ár, hvað svo sem veldur, en hér fyrir nokkrum árum voru allt að 24 sveitir, sem tóku þátt á þessu móti.