Fjölmennasti útskriftarárgangur Menntaskóla Borgarfjarðar

Í gær var hátíðisdagur í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. 44 nemendur voru brautskráðir og var þetta jafnframt mesti fjöldi sem hefur brautskráðst að vori frá skólanum. Ernir Daði Arnbergz Sigurðsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Honum var tíðrætt um þá góðu stemningu og manneskjulegu menningu sem væri í skólanum. Að venju var utanaðkomandi aðila boðið að vera með gestaávarp við brautskráningu og að þessu sinni var það Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands og nú prófessor við HÍ sem flutti erindi. Guðni talaði beint til nemenda og hvatti þá til að taka óhræddir móti næstu áskorunum og að þeir muni að lífið tekur breytingum - og einnig við.