Fréttir

true

Margir voru sektaðir í umferðinni

Um liðna helgi var mikil umferð í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Þrjú umferðarslys eða óhöpp voru tilkynnt til lögreglu. 136 ökumenn voru stöðvaðir og kærðir fyrir of hraðan akstur en að auki voru 408 ökumenn myndaðir af myndavélabifreið embættisins við að aka of hratt. Tveir voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Tíu ökumenn…Lesa meira

true

Börnin fá sólmyrkvagleraugu

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur nú afhent öllum leik- og grunnskólum sveitarfélagsins sérstök sólmyrkvagleraugu í tilefni af almyrkvanum sem verður sjáanlegur um vestanvert landið miðvikudaginn 12. ágúst. Markmiðið er að tryggja að öll börn í sveitarfélaginu geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan og skemmtilegan hátt. Leik- og grunnskólar Borgarbyggðar dreifa svo gleraugunum til barna á…Lesa meira

true

Samið um neysluvatnsrannsóknir í norðurhlíðum Akrafjalls

Veitur hafa undirritað samkomulag um rannsóknir á vatnstökumöguleikum í landi Bekansstaða, Hvítaness og Arkarlækjar í Hvalfjarðarsveit. „Í samstarfi við landeigendur verður rannsakað hvort nýtanlegt magn af góðu neysluvatni sé til staðar. Rannsóknasamkomulagið er til fimm ára. Lagt er upp með að byrja á því að bora ofan lindasvæðanna til þess að kanna hvort unnt sé…Lesa meira

true

Fræðsluþing í FVA á morgun

Fyrsta Fræðsluþing framhaldsskólanna þriggja á Vesturlandi; FVA, MB og FSN, verður haldið í Fjölbrautaskóla Vesturlands á morgun, miðvikudaginn 27. maí. Yfirskrift fræðsluþingsins er framtak og forvitni, þar sem skólarnir kynna helstu nýjungar og nýsköpum í námi og kennslu. Viðburðurinn er liður í kjarasamningsbundinni starfsþróun kennara og hafa starfsþróunarteymi skólanna skipulagt metnaðarfulla dagskrá með fjölbreyttum erindum…Lesa meira

true

Rafmagnsleysi aðfaranótt föstudags

Vegna viðhaldsvinnu Landsnets við aðveitustöð rafmagns á Vatnshömrum í Andakíl verður rafmagnslaust á öllu Snæfellsnesi og í Borgarfirði frá kl. 00:10 til 02:10 aðfaranótt föstudagsins 29. maí. Svæðið sem um ræðir er allt Snæfellsnes og Borgarfjörður, þ.m.t. Stykkishólmur, Grundarfjörður, Ólafsvík, Hellissandur, Vegamót og Borgarnes. „Viðskiptavinir eru hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna þessa,“ segir…Lesa meira

true

Ómannað loftfar fer á flug

Landhelgisgæsla Íslands tekur ómannað loftfar til notkunar í vikunni sem ætlað er til eftirlits á hafsvæðinu umhverfis landið næstu mánuði. Loftfarið verður gert út frá Hornafjarðarflugvelli og er af gerðinni Tekever AR5. Það verður nýtt við löggæslu, leit, björgun og mengunareftirlit á hafsvæðinu umhverfis Ísland. „Tilkoma loftfarsins mun styrkja stöðumynd Landhelgisgæslunnar á hafinu umhverfis Ísland…Lesa meira

true

Hægir á aukningu erlendrar netverslunar

Rannsóknasetur verslunarinnar hefur birt tölur um erlenda netverslun fyrir marsmánuð. Hægt hefur nokkuð á vexti erlendrar netverslunar það sem af er ári og nam aukning í mars aðeins 5,0%. Til samanburðar var aukning í erlendri netverslun í janúar á þessu ári 15,8% samaborið við sama mánuð í fyrra. Aukning á erlendri netverslun á fyrsta ársfjórðungi…Lesa meira

true

Vélarvana við Syðrahraun

Skömmu fyrir klukkan ellefu í morgun barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar aðstoðarbeiðni frá litlum fiskibát sem staddur var við Syðrahraun í Faxaflóa. Vélarbilun hindraði frekari för og rafmagn hafði farið af bátnum. Áhöfn björgunarskipsins Jóhannesar Briem í Reykjavík var boðuð út og hélt skipið úr höfn rétt upp úr klukkan 11. Skömmu fyrir hádegi var Jóhannes kominn…Lesa meira

true

Kæra hótanir um ofbeldi

Matvælastofnun hefur sent kæru til lögreglu og farið fram á rannsókn á meintum brotum einstaklings gegn almennum hegningarlögum. Kæran snýr meðal annars að hótunum um ofbeldi gegn starfsmönnum stofnunarinnar vegna starfa þeirra í tengslum við vörslusviptingu dýra. Samkvæmt 106. gr. almennra hegningarlaga er refsivert að beita opinbera starfsmenn ofbeldi eða hótunum um ofbeldi við störf…Lesa meira

true

Framkvæmdir á vegum og varað við holum

Í samantekt Vegagerðarinnar um færð á vegum á Vesturlandi kemur fram að mikið er um holuviðgerðir og því eru vinnuflokkar að störfum. Fólk er beðið að virða merkingar og aka með gát. Meðfylgjandi mynd er úr safni Skessuhorns frá vegaframkvæmdum í Dölum. Framkvæmdir verða á Snæfellsnesvegi (54) í Staðarsveit, milli Hraunsmúla og Búðahrauns, og verður…Lesa meira