Börnin fá sólmyrkvagleraugu

Sveitarfélagið Borgarbyggð hefur nú afhent öllum leik- og grunnskólum sveitarfélagsins sérstök sólmyrkvagleraugu í tilefni af almyrkvanum sem verður sjáanlegur um vestanvert landið miðvikudaginn 12. ágúst. Markmiðið er að tryggja að öll börn í sveitarfélaginu geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan og skemmtilegan hátt. Leik- og grunnskólar Borgarbyggðar dreifa svo gleraugunum til barna á næstu vikum.