Lindalækur í landi Arkarlækjar við rætur Akrafjalls. Ljósm. Veitur

Samið um neysluvatnsrannsóknir í norðurhlíðum Akrafjalls

Veitur hafa undirritað samkomulag um rannsóknir á vatnstökumöguleikum í landi Bekansstaða, Hvítaness og Arkarlækjar í Hvalfjarðarsveit. „Í samstarfi við landeigendur verður rannsakað hvort nýtanlegt magn af góðu neysluvatni sé til staðar. Rannsóknasamkomulagið er til fimm ára. Lagt er upp með að byrja á því að bora ofan lindasvæðanna til þess að kanna hvort unnt sé að vinna vatn með borholum. Með borun er mögulega hægt að nýta betur vatn sem annars rynni fram sem grunnvatn. Vonir standa til að frá svæðunum mætti vinna neysluvatn til að nýta í vaxandi samfélag á Akranesi og þess hluta Hvalfjarðarsveitar sem tengdur er veitunni,“ segir í tilkynningu frá Veitum.