Fréttir

true

Ekki bílastæði heldur sleppistæði

Akraneskaupstaður vekur athygli á því að „rennurnar“ við Jaðarsbakka og Grundaskóla eru ekki bílastæði heldur svokölluð „sleppistæði“ sem er eingöngu ætlað til þess að hleypa farþegum inn eða út, eða vegna losunar eða lestunar farms. Borið hefur á því að ökutækjum sé lagt þarna langtímum saman, jafnvel allan daginn. Mikilvægt er að því verði hætt…Lesa meira

true

Borgarbyggð býður upp á sumarnámskeið fyrir börn

Borgarbyggð hyggst bjóða upp á fjölbreytt sumarnámskeið fyrir börn í sveitarfélaginu og er skráning þegar hafin. Um fjölbreytt og mikið úrval spennandi sumarnámskeiða er að ræða. „Boðið verður upp á leikja-, íþrótta-, leiklistar- og afþreyingarnámskeið með áherslu á útivist, hreyfingu, sköpun og góða samveru yfir sumartímann,“ segir á vef sveitarfélagsins. Námskeiðin eru annars vegar fyrir…Lesa meira

true

Skarð höggvið í leikmannahóp meistaraflokks karla hjá ÍA

Skagamenn urðu fyrir áfalli eftir leik gegn Þór á Akureyri síðastliðinn sunnudag þegar þeir sóttu dýrmæt stig norður. Markvörður ÍA, Árni Marinó Einarsson, varð fyrir því óhappi að ristarbrotna seint í fyrri hálfleik, en harkaði af sér út leikinn. Það að er mikið lagt á sig fyrir liðið til að landa sigri. Árni Marinó verður…Lesa meira

true

Sjálfstæðisflokkur og Borgarbyggðarlisti reyna myndun meirihluta

Í kjölfar niðurstöðu kosninganna í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps var ljóst að Sjálfstæðisflokkur yrði í lykilstöðu við myndun meirihluta. Sigurður Guðmundsson oddviti flokksins átti á sunnudaginn fundi með oddvitum hinna framboðanna. „Í kjölfar þessara viðræðna höfum við ákveðið að hefja formlegt samtal við Borgarbyggðarlistann um meirihlutasamstarf næstu fjögur árin,“ segir Sigurður. Borgarbyggðarlistinn fékk tvo…Lesa meira

true

Fyrirhuguð gerð nýs árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð

Í febrúar síðastliðinn hélt Snæfellsjökulsþjóðgarður málþing um gjaldskyldu á ferðamannastöðum og í framhaldi af því er nú boðað til opinnar kynningar- og umræðufundaraðar um Snæfellsnes. Fundaröðin er í tengslum við verkefni sem Rannsóknamiðstöð ferðamála heldur utan um, en það ber heitið Return. Á fundunum gefst fólki tækifæri til að hafa áhrif á þróun nýs árspassa…Lesa meira

true

Leikskólabörn heimsækja slökkviliðið – myndasyrpa

Í dag býður Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar leikskólabörnum á starfssvæði sínu að heimsækja slökkvistöðina við Kalmansvelli. Hópur slökkviliðs- og sjúkraflutningafólks sýndi börnunum búnað og tæki og þá fengu börnin að sprauta úr brunaslöngum í mark og hlaupa í gegnum vatnsfoss. Bjössi brunabangsi var á svæðinu og steig dans með krökkunum. Veður var ákjósanlegt eins og…Lesa meira

true

Blíðskaparveður leikur við hafnarstarfsmenn

Veðrið leikur við Vestlendinga þessa dagana og kærkomin sólin yljar íbúum þó að lofthitinn sé ekki í hærra lagi. Hafnarstarfsmennirnir Kristján Freyr og Snorri nýttu þó veðurblíðuna og náðu sér í smá D vítamín á meðan þeir máluðu og gerðu snyrtilegt á Grundarfjarðarhöfn.Lesa meira

true

Nýr matarvagn í Grundarfirði

Það hefur aðeins bæst við valkostina sem svangir Grundfirðingar og ferðalangar hafa úr að velja í Grundarfirði í vor. Matarvagninn Marflóin hefur verið opnaður við hliðina á Mæstró pylsuvagninum í miðbænum. Marflóin býður upp á glænýjan fisk og franskar og fiskisúpu. Það voru þau Þórir Árnason og Anna Bryndís Aðalsteinsdóttir sem tóku brosandi á móti…Lesa meira

true

Söngveisla til fjármögnunar á nýjum flygli

Föstudaginn 3. júlí í sumar er búið að kynna mikla söngveisla sem verður í Félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal. Þar verður flutt fjölbreytt söngdagskrá við allra hæfi – allt frá helstu perlum óperubókmenntanna til ljúfra sönglaga sem allir þekkja. Á tónleikunum verður vígður nýr flygill í Dalabúð. „Aðgangseyrir rennur óskiptur í flygilsjóð, miðaverð er 5.500 krónur,…Lesa meira