
Árni Marinó markvörður ÍA lenti í harðri tæklingu í leiknum við Þór, með þeim afleiðingum að hann ristarbrotnaði. Ljósm. fotbolti.net
Skarð höggvið í leikmannahóp meistaraflokks karla hjá ÍA
Skagamenn urðu fyrir áfalli eftir leik gegn Þór á Akureyri síðastliðinn sunnudag þegar þeir sóttu dýrmæt stig norður. Markvörður ÍA, Árni Marinó Einarsson, varð fyrir því óhappi að ristarbrotna seint í fyrri hálfleik, en harkaði af sér út leikinn. Það að er mikið lagt á sig fyrir liðið til að landa sigri. Árni Marinó verður frá næstu sex til átta vikurnar vegna meiðslanna. Það vakti athygli sparkspekinga að hann tók ekki markspyrnur í seinni hálfleiknum, en það var vegna meiðslanna.