Fyrirhuguð gerð nýs árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð

Í febrúar síðastliðinn hélt Snæfellsjökulsþjóðgarður málþing um gjaldskyldu á ferðamannastöðum og í framhaldi af því er nú boðað til opinnar kynningar- og umræðufundaraðar um Snæfellsnes. Fundaröðin er í tengslum við verkefni sem Rannsóknamiðstöð ferðamála heldur utan um, en það ber heitið Return. Á fundunum gefst fólki tækifæri til að hafa áhrif á þróun nýs árspassa í Snæfellsjökulsþjóðgarð og eiga samtal um gjaldskyldu.