
Blíðskaparveður leikur við hafnarstarfsmenn
Veðrið leikur við Vestlendinga þessa dagana og kærkomin sólin yljar íbúum þó að lofthitinn sé ekki í hærra lagi. Hafnarstarfsmennirnir Kristján Freyr og Snorri nýttu þó veðurblíðuna og náðu sér í smá D vítamín á meðan þeir máluðu og gerðu snyrtilegt á Grundarfjarðarhöfn.