
Reglulegur garðsláttur gefur betra og fallegra gras. Ljósm. Snæfellsbær
Elli- og örorkulífeyrisþegar eiga rétt á garðslætti í Snæfellsbæ
Í Snæfellsbæ er lagt mikið upp úr því að styðja við örorku- og ellilífeyrisþega. Mikilvægt er að hirða vel um garða sína á sumrin, en því fylgir oftast mikil vinna. Það getur hins vegar verið þungur ljár í þúfu þegar fólk fer að reskjast eða er þannig ástatt fyrir að það getur ekki séð um það sjálft vegna heislubrests. Elli- og örorkulífeyrisþegar sjötíu ára og eldri, með lögheimili í Snæfellsbæ og hafa fasta búsetu í eign sinni, hafa rétt til garðsláttar.