
Sleppistæði móts við Jaðarsbakka. Ljósm. óhk
Ekki bílastæði heldur sleppistæði
Akraneskaupstaður vekur athygli á því að „rennurnar“ við Jaðarsbakka og Grundaskóla eru ekki bílastæði heldur svokölluð „sleppistæði“ sem er eingöngu ætlað til þess að hleypa farþegum inn eða út, eða vegna losunar eða lestunar farms. Borið hefur á því að ökutækjum sé lagt þarna langtímum saman, jafnvel allan daginn. Mikilvægt er að því verði hætt svo þau þjóni sínum tilgangi.