
Borgarbyggð býður upp á sumarnámskeið fyrir börn
Borgarbyggð hyggst bjóða upp á fjölbreytt sumarnámskeið fyrir börn í sveitarfélaginu og er skráning þegar hafin. Um fjölbreytt og mikið úrval spennandi sumarnámskeiða er að ræða. „Boðið verður upp á leikja-, íþrótta-, leiklistar- og afþreyingarnámskeið með áherslu á útivist, hreyfingu, sköpun og góða samveru yfir sumartímann,“ segir á vef sveitarfélagsins.