Fréttir

true

Yfirgnæfandi meirihluti í Hvalfjarðarsveit á móti sameiningu

Samhliða sveitarstjórnarkosningum á laugardaginn fór fram óbindandi viðhorfskönnun meðal íbúa Hvalfjarðarsveitar um sameiningarmál. Spurt var: „Hver er afstaða þín til sameiningar Hvalfjarðarsveitar við önnur sveitarfélög?“ 657 voru á kjörskrá og af þeim greiddu 467 atkvæði, eða 71,1%. Niðurstaðan varð sú að yfirgnæfandi meirihluti íbúa er andsnúinn sameiningu, alls 332 manns, eða 71,1% þeirra sem afstöðu…Lesa meira

true

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Grundarfirði

Skemmtiferðaskipið Fridtjof Nansen sigldi inn lygnan Grundarfjörðinn í gærmorgun og lagðist að bryggju við Norðurgarð. Farþegar gengu í land og fóru annað hvort í göngutúr um bæinn í blíðskaparveðri eða upp í rútur sem flutti þá hringinn í kringum Snæfellsnes. Skipið var með 381 farþega sem voru ekki sviknir af íslenska vorveðrinu.Lesa meira

true

Kári og Hvíti Riddarinn skildu jafnir

Síðastliðinn föstudag áttust við í Akraneshöllinni Kári og Hvíti Riddarinn í annarri deild karla í fótbolta. Þessi lið hafa mæst 16 sinnum, þar af hefur Kári borið sigur úr býtum níu sinnum, fjögur jafntefli og þrír sigrar hjá Hvíta Riddaranum. Að þessu sinni lauk tíðindalitlum leik með markalausu jafntefli. Kári situr á toppnum með sjö…Lesa meira

true

Skagakonur féllu úr Mjólkurbikarnum

Síðastliðinn föstudag áttust við Fram og ÍA á Lambhagavellinum í Mjólkurbikar kvenna. Fram var talsvert betri aðilinn í leiknum en framan af gekk þeim illa að finna netmöskvana. ÍA konur náðu ekki að skapa sér mikið af færum en fengu eitt dauðafæri þegar staðan var 0-0, skömmu áður en Fram konur skoruðu sitt fyrsta mark…Lesa meira

true

Kynna frumtillögur um framtíðarsýn fyrir Ægisbraut

Næstkomandi miðvikudag klukkan 17 heldur Akraneskaupstaður kynningarfund um frumtillögur að framtíðarsýn fyrir Ægisbraut. Þrjár hönnunarstofur, Basalt, Hjark og Tark, hafa nú skilað inn tillögum sínum og verða þær kynntar fyrir íbúum. Fundurinn verður haldinn í sal Grundaskóla. Það var skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar sem fékk stofurnar til að vinna tillögurnar, en samkvæmt gildandi aðalskipulagi er…Lesa meira

true

Bjóða út rekstur Bíóhallarinnar

Akraneskaupstaður hefur ákveðið að bjóða út rekstur Bíóhallarinnar og óskar eftir aðila/aðilum til að annast umsjón og rekstur hússins frá 1. júlí 2026 til 31. desember 2029, með möguleika á framlengingu. „Mikilvægt er að starfsemi í húsinu taki mið af því að Bíóhöllin er sögufrægt menningarhús frá árinu 1942 og skal taka mið af menningarhlutverki…Lesa meira

true

Skagamenn sóttu þrjú stig norður

Síðdegis í gær mættust Þór og ÍA á Þórsvellinum á Akureyri í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Þórsarar voru heillum horfnir í fyrri hálfleik og það tækifæri létu Skagamenn sér ekki úr greipum ganga. Þeir réðu lögum og lofum á vellinum en fyrsta markið kom þó ekki fyrr en á 36. mínútu með…Lesa meira

true

Þrjú útköll á björgunarskipin

Í nótt og morgun hafa áhafnir þriggja björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar verið í aðgerðum við að koma aflvana fiskibátum til aðstoðar. Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi, sunnudagskvöld, barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð frá fiskibát sem þá var staddur á miðjum Breiðafirði og hafði orðið fyrir vélarbilun. Um borð voru þá tveir í áhöfn en…Lesa meira

true

Besta veðrið á vertíðinni

Guðmundur Steindórsson ásamt Freysteini syni sínum róa á strandveiðum á bátnum Diddu SH. Þessi mynd var tekin nú rétt í þessu skammt utan við Ólafsvík á veiðislóð sem nefnist Lækurinn. Þeir feðgar voru komnir með um 300 kíló um borð þegar Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns, sem sjálfur rær á Svövu SH, náði af þeim tali.…Lesa meira

true

Íslandsmótið í blaki kláraðist á Snæfellsnesi um helgina

Það var mikið um að vera á Snæfellsnesi þegar rúmlega tvöhundruð keppendur í blaki komu og létu ljós sitt skína í íþróttahúsum Grundarfjarðar og Snæfellsbæjar. Keppt var í undir 12 ára og undir 14 ára drengir og stúlkur og var hart barist á öllum völlum. Gleðin var þó ávallt við völd hvernig sem leikirnir fóru.…Lesa meira