
Þessir hressu iðkendur komu alla leið frá Seyðisfirði vestur á Snæfellsnes til að taka þátt. Ljósmyndir: tfk
Íslandsmótið í blaki kláraðist á Snæfellsnesi um helgina
Það var mikið um að vera á Snæfellsnesi þegar rúmlega tvöhundruð keppendur í blaki komu og létu ljós sitt skína í íþróttahúsum Grundarfjarðar og Snæfellsbæjar. Keppt var í undir 12 ára og undir 14 ára drengir og stúlkur og var hart barist á öllum völlum. Gleðin var þó ávallt við völd hvernig sem leikirnir fóru. Þetta var í fyrsta skipti sem Ungmennafélag Grundarfjarðar heldur svona mót og var það ekki hægt nema með aðstoð sjálfboðaliða og velunnara sem létu allt ganga upp. Krakkarnir gistu í Grunnskóla Grundarfjarðar og svo var boðið upp á hádegismat á báðum stöðum og svo kvöldmáltíðir í Grundarfirði. Það voru því nokkuð lúnir krakkar sem stigu upp í rútur og bíla á sunnudaginn eftir verðlaunaafhendingu.