Áhöfn skipsins hafði sett út slöngubát sem dólaði sér við skipið í gærmorgun. Ljósm. tfk

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Grundarfirði

Skemmtiferðaskipið Fridtjof Nansen sigldi inn lygnan Grundarfjörðinn í gærmorgun og lagðist að bryggju við Norðurgarð. Farþegar gengu í land og fóru annað hvort í göngutúr um bæinn í blíðskaparveðri eða upp í rútur sem flutti þá hringinn í kringum Snæfellsnes. Skipið var með 381 farþega sem voru ekki sviknir af íslenska vorveðrinu.