
Þrjú útköll á björgunarskipin
Í nótt og morgun hafa áhafnir þriggja björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar verið í aðgerðum við að koma aflvana fiskibátum til aðstoðar. Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi, sunnudagskvöld, barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um aðstoð frá fiskibát sem þá var staddur á miðjum Breiðafirði og hafði orðið fyrir vélarbilun. Um borð voru þá tveir í áhöfn en voru á leið til Hafnarfjarðar til viðgerða á bátnum. Áhöfn björgunarskipsins Bjargar í Rifi var boðuð út og hélt Björgin til aðstoðar. Þegar klukkan var um tuttugu mínútur í níu var Björg komin að skipinu og í framhaldinu var taug komið á milli og stefnan sett suður fyrir Snæfellsnes. Í millitíðinni hafði áhöfnin á Kristrúnu frá Bjargi, björgunarskipinu á Akranesi, verið boðuð út til að halda til móts við Björgina og taka við drætti fyrir sunnan Malarrif og draga bátinn seinni spölinn til Hafnarfjarðar þangað sem ferðinni var upphaflega heitið.
Skipin mættust svo um þrjúleitið í nótt og þá tók Kristrún frá Bjargi við drætti en Björg hélt til heimahafnar þangað sem hún var komin um fjögurleytið. Nú um níuleytið í morgun var svo Kristrún að renna inn í Hafnarfjarðarhöfn.
Um hálfsjö í morgun var svo áhöfnin á Húnabjörginni, björgunarskipinu á Skagaströnd, boðuð út vegna fiskibáts sem hafði lent í vandræðum á Húnaflóa. Vél skipsins hafði ofhitnað og um tíma var óttast að eldur gæti brotist út. Svo fór þó ekki og tókst skipverja að drepa á vél með því að loka fyrir eldsneytisrennsli að henni. Húnabjörgin var svo komin með bátinn til hafnar á Skagaströnd rétt um átta í morgun.