
Skagakonur féllu úr Mjólkurbikarnum
Síðastliðinn föstudag áttust við Fram og ÍA á Lambhagavellinum í Mjólkurbikar kvenna. Fram var talsvert betri aðilinn í leiknum en framan af gekk þeim illa að finna netmöskvana. ÍA konur náðu ekki að skapa sér mikið af færum en fengu eitt dauðafæri þegar staðan var 0-0, skömmu áður en Fram konur skoruðu sitt fyrsta mark á 29. mínútu. Það er aldrei að vita nema leikurinn hefði farið öðruvísi ef Skagakonur hefðu náð að skora á undan - staðan í hálfleik 1-0 fyrir Fram. Eftir að tæpar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik skoraði Fram sitt annað mark og á 57. mínútu bættu þær við þriðja markinu og þannig enduðu leikar. Sneypuför ÍA í Úlfarsárdalinn og liðið fallið úr Mjólkurbikarnum.