Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. mm

Yfirgnæfandi meirihluti í Hvalfjarðarsveit á móti sameiningu

Samhliða sveitarstjórnarkosningum á laugardaginn fór fram óbindandi viðhorfskönnun meðal íbúa Hvalfjarðarsveitar um sameiningarmál. Spurt var: „Hver er afstaða þín til sameiningar Hvalfjarðarsveitar við önnur sveitarfélög?“ 657 voru á kjörskrá og af þeim greiddu 467 atkvæði, eða 71,1%. Niðurstaðan varð sú að yfirgnæfandi meirihluti íbúa er andsnúinn sameiningu, alls 332 manns, eða 71,1% þeirra sem afstöðu tók. Hlynntir sameiningu voru 69 eða 14,8%. 34 vildu ekki taka afstöðu, eða 7,3%. Auðir seðlar og ógildir voru 6,8%.

Þeir sem sögðust hlynntir sameiningu völdu flestir að sameinast Akransekaupstað, eða 50 manns, níu völdu Kjósarhrepp, tveir Borgarbyggð og átta völdu fleiri en einn möguleika.